VIÐBRÖGÐIN VORU SEND TIL ÁSKRIFENDA Í KJÖLFAR UPPGJÖRS OG ERU BIRT OPINBERLEGA NÚNA - NEÐANGREINT MIÐAST VIÐ ÞÆR UPPLÝSINGAR SEM LÁGU FYRIR KVÖLDIÐ 11. MAÍ 2026.
STUTTA ÚTGÁFAN
Gott uppgjör þar sem rekstrarhagnaður er lítillega umfram væntingar og horfur ársins lítillega umfram væntingar
Jákvætt:
Rekstrarhagnaður lítillega umfram væntingar
Staðfestar horfur ársins lítillega umfram væntingar
Matsbreyting töluvert umfram væntingar
Neikvætt:
Fjármunatekjur og hagnaður töluvert undir væntingum
Reitir birtu uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2026 fyrr í dag. EBITDA tímabilsins er lítillega umfram væntingar AKKUR á meðan hagnaður er töluvert undir væntingum vegna meiri verðbólguáhrifa en spá gerði ráð fyrir.
Hér að neðan má sjá samantekt á uppgjöri félagsins borið saman við spá AKKUR og fyrra ár.

Eins og sést á þessari samantekt eru tekjur lítillega yfir væntingum og kostnaður í samræmi við væntingar, og þ.a.l. EBITDA lítillega yfir væntingum. Matsbreyting og fjármagnsgjöld eru töluvert yfir væntingum.
Eins og sést á samanburði við fyrra ár er reksturinn að batna töluvert á milli ára. Tekjur aukast um 11,8% og EBITDA um 14,7%. Líkt og kom fram í frumskýrslu AKKUR um Reiti er gert ráð fyrir að þessi þróun haldi áfram eftir því sem nýjar eignir og þróunarverkefni verða tekjuberandi.
Jákvæðir punktar
Rekstrarhagnaður (EBITDA) er lítillega umfram væntingar (+77m eða +2,5%). EBITDA hlutfall hækkar um 170bps milli ára í 66,8% úr 65,1%, og er 56bps yfir spá.
Matsbreyting fjárfestingareigna er töluvert umfram væntingar (+319m eða +12,7%) og dreifist nokkuð jafnt yfir alla starfsþætti.
Áætlun ársins 2026 er lítillega umfram væntingar AKKUR. Í frumskýrslu var gert ráð fyrir EBITDA 2026 að upphæð 12,9ma. kr. Áætlun félagsins hljóðar upp á 13,0-13,3ma. kr. og félagið tilkynnir nú að horfur liggja við efri mörk bilsins þar sem verðlag hefur hækkað meira en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir. Hins vegar ber að nefna að verðmat í frumskýrslu var unnið á raungrunni og því eru áhrif á verðmat takmörkuð.
Neikvæðir punktar
Hreinn fjármagnskostnaður er töluvert yfir væntingum (+630m eða +14,6%) vegna mikilla verðbóta á verðtryggðum skuldum en verðbætur hækka um 169% á milli ára. Þrátt fyrir að rekstur batni um 14,7% á milli ára þá lækkar hreinn hagnaður um 21,6% vegna verðbólguáhrifa. Líkt og komið var inn á að ofan þá var verðmat unnið á raungrunni og sveiflur í verðbólgu hafa því lítil sem engin áhrif á niðurstöðu verðmatsins.
Niðurstaða
Gott uppgjör þar sem rekstrarhagnaður er lítillega umfram væntingar og horfur ársins lítillega umfram væntingar.
Verðlagning
Miðað við dagslokagengi í dag er heildarvirði félagsins 233ma að teknu tilliti til eigin bréfa sem þýðir að það er metið á 16,9x EBITDA síðustu 12 mánaða (leiðrétt fyrir bókfærðu virði þróunareigna) eða 15,9x EBITDA ársins 2026 miðað við efri mörk áætlunar félagsins.
Heildarvirði á fermetra er tæplega 485þkr og P/B (leiðrétt fyrir tekjuskattsskuldbindingu) er 0,77x.
Myndin hér að neðan sýnir sögulega þróun á leiðréttu EV/EBITDA hlutfalli hlaupandi tólf mánuði frá skráningu.
