Starfsreglur

Eftirfarandi starfsreglur gilda um alla starfsmenn og/eða aðra greinendur sem vinna að efni sem gefið er út af Akkur – Greining og ráðgjöf ehf. (“Akkur”).

Greiningar Akkurs eru unnar í samræmi við reglugerð ESB nr. 596/2014 um markaðssvik og framselda reglugerð (ESB) nr. 2016/958.

Starfsmenn Akkurs skulu starfa af heiðarleika, fagmennsku og forðast hagsmunaárekstra. Gæta skal hlutlægni við vinnslu og birtingu alls efnis.

Greiningar Akkurs skulu einungis byggja á opinberum upplýsingum frá traustum aðilum. Með traustum aðilum er átt við útgefendur verðbréfanna sjálfra, stofnana, ráðuneyta og annarra slíkra aðila.

Greiningar skulu framkvæmdar með viðurkenndum aðferðum og skal aðferðafræðinnar getið hverju sinni, sem og helstu forsendum greininga. Ef mismunandi aðferðir eða forsendur eru notaðar við greiningu sama verðbréfs skal þess getið sérstaklega. Greiningar á verðbréfum skulu vera óháðar útgefendum verðbréfanna. Greiningar skulu dagsettar og nafn höfundar eða höfunda koma skilmerkilega fram.

Starfsmönnum Akkurs er óheimilt að vera með hreina gnótt- eða skortsöðu sem nemur meira en 0,1% af útgefnu hlutafé útgefanda sem Akkur gefur út greiningar um.

Starfsmönnum Akkurs er óheimilt að eiga viðskipti með verðbréf í 30 daga fyrir og í 7 daga eftir útgáfu greiningar á viðkomandi verðbréfi.

Eigi starfsmenn Akkurs viðskipti með verðbréf, sem rúmast innan þessara reglna, skal geta þess í næstu greiningu viðkomandi verðbréfs.

Komi upp hagsmunaárekstur milli starfsmanna Akkurs og útgefanda sem setja hlutleysi Akkurs í vafa skal Akkur upplýsa um hagsmunaáreksturinn og eftir atvikum hætta útgáfu greininga á verðbréfum útgefanda.

Starfsreglur þessar skulu uppfærðar eftir því sem þurfa þykir og eigi sjaldnar en árlega.

Þannig samþykkt í stjórn Akkurs – Greiningar og ráðgjafar ehf. þann 20. desember 2024.