VIÐBRÖGÐIN VORU SEND TIL ÁSKRIFENDA Í KJÖLFAR UPPGJÖRS OG ERU BIRT OPINBERLEGA NÚNA - NEÐANGREINT MIÐAST VIÐ ÞÆR UPPLÝSINGAR SEM LÁGU FYRIR KVÖLDIÐ 11. FEBRÚAR 2026.

STUTTA ÚTGÁFAN
Gott uppgjör þar sem kjarnarekstur er umfram væntingar

Jákvætt:

  1. Afkoma trygginga töluvert umfram væntingar

  2. Rekstrarkostnaður lítillega undir væntingum

  3. Fjármunatekjur og aðrar tekjur langt umfram væntingar

  4. Undirliggjandi hagnaður áfram sterkur

Neikvætt:

  1. Þóknanatekjur undir væntingum

  2. Virðisrýrnun langt yfir væntingum

Arion banki birti uppgjör fyrir fjórða ársfjórðung 2025 og árið í heild fyrr í dag. Hagnaður tímabilsins er töluvert yfir væntingum og góður gangur í undirliggjandi rekstri.

Hér að neðan má sjá samantekt á uppgjöri félagsins borið saman við spá AKKUR og meðaltal greiningaraðila.

Eins og sést á þessari samantekt eru hreinar vaxtatekjur og þóknanatekjur lítillega undir væntingum á meðan afkoma af tryggingum eru töluvert yfir væntingum. Fjármunatekjur og aðrar tekjur eru langt umfram væntingar. Rekstrarkostnaður var lítillega undir væntingum.

Virðisrýrnun var langt umfram væntingar en líkt og áður hefur komið fram er ekki reynt að spá fyrir um sveiflur í þessum lið heldur er gert ráð fyrir að virðisrýrnun sé í kringum 0,25% á ári út spátímabilið. Líkt og bent var á í viðbrögðum við síðasta uppgjöri er líklegt að virðisrýrnun muni aukast tímabundið ef atvinnuleysi heldur áfram að aukast og/eða helst hátt.

Jákvæðir punktar

  1. Afkoma trygginga er töluvert umfram væntingar. Bæði var tekjuvöxtur meiri og samsett hlutfall lægra en spá AKKUR gerði ráð fyrir. Hægst hafði á tekjuvexti undanfarna fjórðunga en jókst töluvert á síðasta ársfjórðungi.

  2. Rekstrarkostnaður var lítillega undir væntingum sem er jákvætt í verðbólguumhverfi.

  3. Fjármunatekjur og aðrar tekjur voru langt umfram væntingar. Aðrar tekjur voru fyrst og fremst vegna sölu á Arnarlandi. Fjármunatekjur voru einnig töluvert umfram væntingar.

  4. Kjarnarekstur er sterkur og undirliggjandi hagnaður heldur áfram að aukast.

Neikvæðir punktar

  1. Þóknanatekjur voru undir væntingum og munar þar mestu um tekjur af fjárfestingarbankastarfsemi. Þessar þóknanir eru sveiflukenndar og því ekki horft of mikið í niðurstöðuna að sinni.

  2. Virðisrýrnun var langt umfram væntingar. Líkt og áður hefur komið fram er ekki horft mikið á sveiflurnar í þessum lið og frekar horft til þess að til lengri tíma sé virðisrýrnun um 0,25% af lánabók.

Niðurstaða

Sterkt uppgjör þar sem hagnaður var töluvert umfram væntingar. Kjarnarekstur er sterkur og umfram væntingar.

Verðlagning

Miðað við dagslokagengi í dag er markaðsvirði bankans 274ma að teknu tilliti til eigin bréfa. Hann er því metinn á 8,5x hagnað ársins eða 8,4x hagnað ársins 2026 skv. síðustu spá AKKUR. Á P/B mælikvarða er bankinn metinn á 1,26x bókfært eigið fé hluthafa bankans.

Tvær myndir fá að fylgja sem sýna annars vegar þróun á V/H hlutfalli m.v. hlaupandi tólf mánaða hagnað og undirliggjandi hagnað fyrir skatta auk þess að sýna hvernig hlutföllin líta út fyrir 2026 m.v. spá AKKUR.

AKKUR - Greining og ráðgjöf