VIÐBRÖGÐIN VORU SEND TIL ÁSKRIFENDA Í KJÖLFAR UPPGJÖRS OG ERU BIRT OPINBERLEGA NÚNA - NEÐANGREINT MIÐAST VIÐ ÞÆR UPPLÝSINGAR SEM LÁGU FYRIR KVÖLDIÐ 12. MAÍ 2026.
STUTTA ÚTGÁFAN
Gott uppgjör þar sem rekstrarhagnaður er lítillega umfram væntingar og horfur ársins lítillega umfram væntingar
Jákvætt:
Rekstrarhagnaður lítillega umfram væntingar
Staðfestar horfur ársins lítillega umfram væntingar
Matsbreyting töluvert umfram væntingar
Neikvætt:
Fjármagnskostnaður töluvert yfir væntingum
Heimar birtu uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2026 fyrr í dag. EBITDA tímabilsins er lítillega umfram væntingar AKKUR á meðan hagnaður er langt yfir væntingum vegna meiri matsbreytinga en spá gerði ráð fyrir.
Hér að neðan má sjá samantekt á uppgjöri félagsins borið saman við spá AKKUR og fyrra ár.

Eins og sést á þessari samantekt eru tekjur og kostnaður yfir væntingum sem skilar sér í að EBITDA er lítillega yfir væntingum. Matsbreyting er langt yfir væntingum sem skilar sér í að hagnaður er sömuleiðis langt yfir væntingum.
Eins og sést á samanburði við fyrra ár er reksturinn að batna töluvert á milli ára í krónum talið á meðan framlegðarhlutföll lækka. Hafa ber í hug að nýjar eignir eru í rekstrinum á þessu ári og leiðrétt fyrir breytingum á eignasafni var rauntekjuvöxtur 2,8% á milli ára.
Jákvæðir punktar
Rekstrarhagnaður (EBITDA) er lítillega umfram væntingar (+41m eða +1,5%). EBITDA hlutfall lækkar um 47bps milli ára úr 66,4% í 66,0%, og er 126bps undir spá.
Áætlun ársins 2026 er lítillega umfram væntingar AKKUR. Í frumskýrslu var gert ráð fyrir að EBITDA 2026 væri tæplega 12ma. kr. Félagið hefur nú staðfest að horfur ársins verði við efri mörk áætlunnar sem er 12,15ma þar sem verðlag hefur hækkað meira en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir. Hins vegar ber að nefna að verðmat í frumskýrslu var unnið á raungrunni og því eru áhrif á verðmat takmörkuð.
Matsbreyting fjárfestingareigna er langt umfram væntingar (+1,9ma eða +81,1%) og dreifist nokkuð jafnt yfir alla starfsþætti.
Neikvæðir punktar
Fjármagnskostnaður er töluvert yfir væntingum (+286m eða +7,1%) vegna mikillar verðbólgu á fjórðungnum. Líkt og komið var inn á að ofan þá var verðmat unnið á raungrunni og sveiflur í verðbólgu hafa því lítil sem engin áhrif á niðurstöðu verðmatsins.
Niðurstaða
Gott uppgjör þar sem rekstrarhagnaður er lítillega umfram væntingar og horfur ársins lítillega umfram væntingar.
Verðlagning
Miðað við dagslokagengi í dag er heildarvirði félagsins 211ma að teknu tilliti til eigin bréfa sem þýðir að það er metið á 17,7x EBITDA síðustu 12 mánaða (leiðrétt fyrir bókfærðu virði þróunareigna) eða 16,6x EBITDA ársins 2026 miðað við efri mörk áætlunar félagsins.
Heildarvirði á fermetra er 544þkr og P/B (leiðrétt fyrir tekjuskattsskuldbindingu) er 0,71x.
Myndir hér að neðan sýna sögulega þróun á leiðréttu EV/EBITDA hlutfalli hlaupandi tólf mánuði frá skráningu auk þróun á P/B leiðréttu fyrir tekjuskattsskuldbindingu.

