VIÐBRÖGÐIN VORU SEND TIL ÁSKRIFENDA Í KJÖLFAR UPPGJÖRS OG ERU BIRT OPINBERLEGA NÚNA - NEÐANGREINT MIÐAST VIÐ ÞÆR UPPLÝSINGAR SEM LÁGU FYRIR KVÖLDIÐ 12. MAÍ 2026.
STUTTA ÚTGÁFAN
Mjög sterkt uppgjör þar sem undirliggjandi hagnaður er langt umfram væntingar
Jákvætt:
Vaxtamunur umfram væntingar
Rekstrarkostnaður töluvert undir væntingum
Virðisrýrnun langt undir væntingum
Fyrirhuguð arðgreiðsla yfir 14% af markaðsvirði
Neikvætt:
Þóknanatekjur lítillega undir væntingum
Kvika birti uppgjör fyrsta ársfjórðung 2026 fyrr í dag. Hagnaður tímabilsins er langt umfram væntingar AKKUR og eru allir liðir umfram væntingar nema þóknanatekjur.
Hér að neðan má sjá samantekt á uppgjöri bankans borið saman við spá AKKUR og fyrra ár.

Eins og sést á þessari samantekt eru kjarnatekjur lítillega umfram væntingar en rekstrarkostnaður töluvert undir væntingum sem skilar sér í að undirliggjandi hagnaður eru langt umfram væntingar.
Jákvæðir punktar
Vaxtamunur var mjög sterkur, eða 4,5%, og umfram væntingar á meðan útlánavöxtur var í samræmi við væntingar. Kvika er aðeins með hverfandi verðtryggingar(ó)jöfnuð og hefur há virk verðbólga á fjórðungnum nánast engin áhrif hjá þeim öfugt við stóru viðskiptabankana. Sterkur vaxtamunur skrifast því alfarið á góðan gang í undirliggjandi lánastarfsemi.
Rekstrarkostnaður var töluvert undir væntingum (+254m eða 7,8%) og lækkar um 2,5% milli ára.
Virðisrýrnun var langt undir væntingum AKKUR en líkt og áður hefur komið fram er minna vægi lagt á sveiflukennda liði líkt og virðisrýrnun. Gert er ráð fyrir að virðisrýrnun (e. cost of risk) verði 35-40bps á ári næstu árin.
Stjórn hefur lagt fram tillögu um sérstaka arðgreiðslu sem nemur 10,2mö og er yfir 14% af núverandi markaðsvirði. Auk þess er gefið til kynna félagið geti eigin bréf fyrir allt að 4ma til viðbótar sem er um 6% af markaðsvirði.
Neikvæðir punktar
Þóknanatekjur voru lítillega undir væntingum AKKUR (-50m eða 3,3%). Samkvæmt uppgjörskynningu eru þóknanatekjur að ná jafnvægi í kringum 1,5ma á fjórðungi. Eignir í stýringu lækka á fjórðungnum þar sem lífeyrissjóðir eru að taka fjármuni út stýringu.
Niðurstaða
Mjög sterkt uppgjör þar sem undirliggjandi hagnaður er langt umfram væntingar. Ljóst er að afkoma ársins verður mjög líklega töluvert umfram væntingar AKKUR.
Verðlagning
Miðað við dagslokagengi í dag er markaðsvirði bankans 71ma að teknu tilliti til eigin bréfa sem þýðir að hann er metinn á 12,8x hagnað síðustu 12 mánaða. Á P/B mælikvarða er bankinn er metinn á 1,07x bókfært eigið fé eða 1,55x efnislegt eigið fé.