Þáttur 4 af spjallið með AKKUR er kominn í loftið.
Gestur þáttarins er Sveinn Þórarinsson, hlutabréfagreinandi hjá Arctica Finance. Rætt var um Haga í samhengi við frumskýrslu AKKUR um félagið auk þess sem íslenski hlutabréfamarkaðurinn var ræddur í víðara samhengi.
Sveinn er hokinn af reynslu þegar kemur að greiningum á innlendum hlutabréfum og fáir sem þekkja félögin jafn vel og hann. Allt áhugafólk um hlutabréfamarkaðinn ættu að finna eitthvað áhugavert í þættinum.
Þættirnir eru aðgengilegir á Spotify, YouTube og Apple Podcast.