AKKUR hefur tekið saman yfirlit yfir eignasöfn (flestra) hlutabréfasjóða byggt á upplýsingum sem sjóðirnir birta sjálfir. Sjóðirnir birta lista yfir 10 stærstu eignir sínar í hverjum mánuði ásamt stærð sjóðsins hverju sinni.

Í skjalinu hér að neðan er yfirlit sem sýnir hvernig eignasöfn sjóðanna litu út um síðustu mánaðarmót ásamt breytingum frá því mánuði fyrr og samanburð við OMXI15 og OMX All Shares vísitölurnar.

Auk þess er samantekt um inn- og útflæði hlutabréfasjóða og innlánastöðu heimilanna.

Nýjung í samantektinni er yfirlit yfir nettó kaup/sölur sjóða niður á félög. Settur er sá fyrirvari að yfirlitið sýnir aðeins nálgun á kaup/sölu fyrir eignir sem eru á lista yfir 10 stærstu eignir tvo mánuði í röð. Ef félag dettur út eða kemur nýtt inn á lista sést það ekki á yfirlitinu.

Fróðleiksmoli dagsins

Sjóðirnir seldu töluvert í Íslandsbanka og Amaroq í liðnum mánuði.

2026 01 - Hlutabréfasjóðir.pdf

2026 01 - Hlutabréfasjóðir.pdf

106.66 KBPDF File

Fyrirvari

Samantektin byggir á upplýsingum sjóðanna um samsetningu um síðustu mánaðarmót og tekur AKKUR enga ábyrgð á því að upplýsingarnar séu réttar.

AKKUR - Greining og ráðgjöf