AKKUR hefur tekið saman yfirlit yfir eignasöfn (flestra) hlutabréfasjóða byggt á upplýsingum sem sjóðirnir birta sjálfir. Sjóðirnir birta lista yfir 10 stærstu eignir sínar í hverjum mánuði ásamt stærð sjóðsins hverju sinni.

Í skjalinu hér að neðan er yfirlit sem sýnir hvernig eignasöfn sjóðanna litu út um síðustu mánaðarmót ásamt breytingum frá því mánuði fyrr og samanburð við OMXI15 og OMX All Shares vísitölurnar.

Auk þess er samantekt um inn- og útflæði hlutabréfasjóða og innlánastöðu heimilanna.

Nýtt í samantekt

Bætt hefur verið við samantekt sem sýnir breytingu á nafnverði milli mánaða. Hingað til hefur aðeins verið sýnd breyting á vigt milli mánaða en nú er hægt að sjá bæði breytingu á vigt og hlutfallslega breytingu talið í fjölda hluta.

2025 07 - Hlutabréfasjóðir.pdf

2025 07 - Hlutabréfasjóðir.pdf

576.25 KBPDF File

Athygli er vakin á því að SIV Hllutabréf var ekki búinn að birta uppfærðar upplýsingar þegar þetta er gefið út og því sjást engar breytingar hjá honum og eignasafnið miðast við 30. júní.

Fyrirvari

Samantektin byggir á upplýsingum sjóðanna um samsetningu um síðustu mánaðarmót og tekur AKKUR enga ábyrgð á því að upplýsingarnar séu réttar.

AKKUR - Greining og ráðgjöf