Hlutabréfasjóðir - Samanburður á eignasöfnum og flæði - Maí 25

Samanburður á eignasamsetningu hlutabréfasjóða, breytingar á þeim milli mánaða, samanburður við samsetningu vísitalna og samantekt um flæði hlutabréfasjóða.

AKKUR hefur tekið saman yfirlit yfir eignasöfn (flestra) hlutabréfasjóða byggt á upplýsingum sem sjóðirnir birta sjálfir. Sjóðirnir birta lista yfir 10 stærstu eignir sínar í hverjum mánuði ásamt stærð sjóðsins hverju sinni.

Í skjalinu hér að neðan er yfirlit sem sýnir hvernig eignasöfn sjóðanna litu út um síðustu mánaðarmót ásamt breytingum frá því mánuði fyrr og samanburð við OMXI15 og OMX All Shares vísitölurnar.

Auk þess er samantekt um inn- og útflæði hlutabréfasjóða og innlánastöðu heimilanna.

Fróðleiksmoli dagsins

Innlán heimila jukust um 83ma á fyrstu fjórum mánuðum ársins en til samanburðar var heildareftirspurn í tilboðsbók A í útboði Íslandsbanka 87ma. Kaup almennings jafngilda því “aðeins” innlánaaukningu fjögurra mánaða eða tæplega 5% af innlánum heimilanna.

2025 05 - Hlutabréfasjóðir.pdf523.98 KB • PDF File

Fyrirvari

Samantektin byggir á upplýsingum sjóðanna um samsetningu um síðustu mánaðarmót og tekur AKKUR enga ábyrgð á því að upplýsingarnar séu réttar.