Innleiðing CRR3

Mat á áhrifum á bankana

Eftir að Kvika sendi frá sér kauphallartilkynningu á föstudaginn liggur fyrir mat frá öllum þremur skráðu bönkunum um áhrifin af innleiðingu CRR3.

Tilgangurinn hér verður ekki að fara djúpt ofan í hvað CRR3 er en í stuttu máli er verið að breyta lögum um fjármálafyrirtæki sem hefur m.a. þau áhrif að áhættuvogir á útlánum bankanna breytast og eru heildaráhrifin til lækkunar hjá íslensku bönkunum.

Eins og undirritaður hafði bent á í viðtali við Viðskiptablaðið var líklegt að áhrifin myndu verða (hlutfallslega) mest hjá Kviku en erfitt var að leggja mat á hversu mikil þau yrðu. Nú liggur fyrir að áhættuvegnar eignir munu lækka um 14% sem er töluvert meira en hjá Arion banka og Íslandsbanka.

Þar sem bankarnir búa allir nú þegar yfir ríflegu eigin hafa þeir ekki þörf fyrir það eigi fé sem losnar við breytingarnar til að vaxa og má því segja að það sé líklegt að þetta verði greitt út með einhverjum hætti.

Hér að neðan má sjá stutta samantekt sem sýnir helstu stærðir ásamt V/H margföldurum bankanna miðað við síðasta mat AKKUR. Vakin er athygli á því að mat fyrir Íslandsbanka var uppfært fyrir útboð ríkisins en ekki er búið að uppfæra mat fyrir Arion banka og Kviku síðan fyrir uppgjör fyrsta ársfjórðungs.

* CET1 er leiðrétt fyrir hagnaði fyrsta ársfjórðungs og frádrætti vegna fyrirhugaðra arðgreiðsla og endurkaupa sem ekki hefur verið nýttur.