Hér að neðan má nálgast helstu niðurstöður markaðskönnunar sem lögð var fyrir dagana 28.-30. apríl.
Helstu niðurstöður
Fjárfestar vænta hækkunar á hlutabréfum næstu 6 mánuði
Bull-Bear spread +39,6
Fjárfestar vænta hækkunar á hlutabréfum næstu 12 mánuði
Bull-Bear spread +71,7
Fjárfestar vænta hækkunar stýrivaxta næstu 6 mánuði en auknar líkur á lægri stýrivöxtum eftir 12 mánuði
Meirihluta fjárfesta telja að 12 mánaða verðbólga verði óbreytt eða lægri eftir 6 mánuði en mikill meirihluti telur að hún verði lægri að 12 mánuðum liðnum
Mikill meirihluti telur íslenskan hlutabréfamarkað heilt yfir vera undirverðlagðan
Fjárfestar meta áhættuálag hlutabréfa (e. market risk premium) að meðaltali vera 5,0%
Könnunin verður reglulegur liður í starfsemi AKKUR og þegar fram líða stundir verður þróun á ýmsum mælikvörðum birt með reglulegu millibili.
