- AKKUR - Greining og ráðgjöf
- Posts
- Samanburður á eignasafni hlutabréfasjóða - Mar 25
Samanburður á eignasafni hlutabréfasjóða - Mar 25
Samanburður á eignasamsetningu hlutabréfasjóða, breytingar á þeim milli mánaða og samanburður við samsetningu vísitalna
AKKUR hefur tekið saman yfirlit yfir eignasöfn (flestra) hlutabréfasjóða byggt á upplýsingum sem sjóðirnir birta sjálfir. Sjóðirnir birta lista yfir 10 stærstu eignir sínar í hverjum mánuði ásamt stærð sjóðsins hverju sinni.
Í skjalinu hér að neðan er yfirlit sem sýnir hvernig eignasöfn sjóðanna litu út um síðustu mánaðarmót ásamt breytingum frá því mánuði fyrr.
Auk þess má sjá samsetningu bæði OMXI15 og OMX All Shares hlutabréfavísitalnanna til samanburðar.
Vakin er sérstök athygli á því að töluverðar breytingar voru gerðar á samsetningu OMX All Shares vísitölunni þann 1. apríl þar sem dregið var verulega úr væri tvískráðu félaganna ALVO, JBTM og OCS. Hingað til hafa sjóðirnir verið yfirvigtaðir í ALVO m.v. OMX15 en undirvigtaðir m.v. OMX All Shares þar sem töluverður munur var á vigt ALVO í vísitölunum tveimur.
|
Fyrirvari
Samantektin byggir á upplýsingum sjóðanna um samsetningu um síðustu mánaðarmót og tekur AKKUR enga ábyrgð á því að upplýsingarnar séu réttar.