Í gær birti Nasdaq verðbréfamiðstöð lista yfir 20 stærstu hluthafa (flestra) skráðra félaga. Hér að neðan má finna samantekt sem sýnir listann niður á félög ásamt breytingu á milli mánaða og á árinu ásamt upplýsingum um veltu og gengisþróun félaganna.
Líkt og áður er yfirlit yfir kaup og sölur 8 stærstu lífeyrisjóðanna eftir félögum Bent er á að þetta er gróf nálgun sem byggir á meðalverði félaganna í mánuðinum og að það vantar nokkur félag í samantektina (ALVO, AMRQ, HAMP, ISF, JBTM, OCS).
ATH - VEGNA SAMEININGAR ALMENNA LÍFEYRISSJÓÐSINS OG LÍFSVERKS MIÐAST BREYTINGAR ÁRSINS AÐEINS VIÐ BREYTINGAR FRÁ LOK JANÚAR HJÁ SJÓÐNUM.
1 - Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Brú lífeyrissjóður selja fyrir u.þ.b. 2,5ma
2 - Capital Group heldur áfram að selja í Íslandsbanka og hafa nú selt 1,6% hlut frá áramótum
3 - Hjalti Baldursson er orðinn stærsti einkafjárfestirinn í Festi með rúmlega 1% hlut
4 - Skúli Gunnar Sigfússon (í Subway) heldur áfram að bæta við sig í Sýn og fer nú með 1,8% hlut

Eins og sést var misjafnt eftir félögum (og sjóðum) hvort lífeyrissjóðir voru nettó kaupendur eða seljendur í síðastliðnum mánuði.
