Í gær birti Nasdaq verðbréfamiðstöð lista yfir 20 stærstu hluthafa (flestra) skráðra félaga. Hér að neðan má finna samantekt sem sýnir listann niður á félög ásamt breytingu á milli mánaða og á árinu ásamt upplýsingum um veltu og gengisþróun félaganna.

Líkt og áður er yfirlit yfir kaup og sölur 8 stærstu lífeyrisjóðanna eftir félögum Bent er á að þetta er gróf nálgun sem byggir á meðalverði félaganna í mánuðinum og að það vantar nokkur félag í samantektina (ALVO, AMRQ, HAMP, ISF, JBTM, OCS).

ATH - VEGNA SAMEININGAR ALMENNA LÍFEYRISSJÓÐSINS OG LÍFSVERKS MIÐAST BREYTINGAR ÁRSINS AÐEINS VIÐ BREYTINGAR FRÁ LOK JANÚAR HJÁ SJÓÐNUM.

1 - Lífeyrissjóðir selja töluvert í Arion banka og Kviku en bæta við sig í flestum öðrum félögum

2 - Capital Group seldi allan eftirstandandi eignarhlut sinn í Íslandsbanka í mars

3 - Kjölur fjárfestingarfélag ehf. minnkar stöðuna sína í Arion banka og er nú 17. stærsti hluthafi Íslandsbanka með 0,79% hlut

2026 03 - Stærstu hluthafar.pdf

2026 03 - Stærstu hluthafar.pdf

173.01 KBPDF File

Eins og sést var misjafnt eftir félögum (og sjóðum) hvort lífeyrissjóðir voru nettó kaupendur eða seljendur í síðastliðnum mánuði.

AKKUR - Greining og ráðgjöf