Á föstudaginn birti Nasdaq verðbréfamiðstöð lista yfir 20 stærstu hluthafa (flestra) skráðra félaga. Hér að neðan má má finna samantekt sem sýnir listann niður á félög ásamt breytingu á milli mánaða og á árinu ásamt upplýsingum um veltu og gengisþróun félaganna.

Nýjung í samantektinni er yfirlit yfir kaup og sölur stærstu lífeyrisjóðanna eftir félögum Bent er á að þetta er gróf nálgun sem byggir á meðalverði félaganna í mánuðinum og að það vantar nokkur félag í samantektina (ALVO, AMRQ, HAMP, ISF, JBTM, OCS).

Heiðar Guðjónsson er orðinn stærsti einkafjárfestinn í Íslandsbanka með rúmlega 0,8% hlut í gegnum Ursus ehf.

2025 10 - Stærstu hluthafar.pdf

2025 10 - Stærstu hluthafar.pdf

166.27 KBPDF File

Eins og sést voru lífeyrissjóðirnir nettó seljendur (þegar horft var á þessi félög) í október.

Helstu breytingar

Stærstu hreyfingarnar milli mánaða voru m.a.;

  • Nokkrir aðilar bæta við sig í ISB:

    • Lífeyrissjóður Verzlunarmanna, Brú lífeyrissjóður og Frjálsi lífeyrissjóðurinn kaupa allir ábilinu 0,12-0,19% hlut.

    • Bankinn kaupir eigin bréf sem nema 0,9% hlut og hefur keypt 4,0% hlut frá áramótum.

    • Ursus ehf. er nú skráð fyrir 0,8% hlut sem var líklega skráður fjármálastofnun áður en því líklega ekki um kaup í október að ræða.

  • Gildi lífeyrissjóður selur 0,36% hlut í ISB og Íslandssjóðir minnka við sig um 0,28%.

  • Lífeyrissjóður Verzlunarmanna kaupir 0,1% hlut í ARION og Brú lífeyrissjóður selur 0,1%.

  • Almenni lífeyrissjóðurinn selur 0,24% hlut í EIK.

  • LSR selur 0,15% hlut í BRIM.

  • Brú lífeyrissjóður selur 0,3% hlut í FESTI og hefur nú selt 1,4% hlut á árinu.

  • Gildi heldur áfram að minnka við hlut sinn í HAGA og selur 0,32% hlut og hafa nú selt 1,0% hlut frá áramótum.

  • Lífeyrissjóður Verzlunarmanna heldur á sama tíma áfram að bæta við sig í HAGA og kaupir tæplega 0,1% og hafa nú keypt 1,6% hlut frá áramótum.

  • Brú lífeyrissjóður selur 0,8% hlut í HEIMAR og hafa nú selt 1,8% hlut frá áramótum.

  • Stapi lífeyrissjóður kaupir 0,27% hlut í HEIMAR og félagið kaupir eigin bréf sem nemur 0,52% hlut.

  • LSR kaupir 0,44% hlut í ICEAIR.

  • FISK-Seafood ehf. kaupir 3,0% hlut í ICESEA og Frjálsi lífeyrissjóðurinn selur 0,92% hlut.

  • Birta lífeyrissjóður og Stapi lífeyirssjóður bæta báðir við sig 0,2% hlut í KVIKA.

  • Stefnir selur 0,76% hlut í NOVA og hafa nú selt 2,6% hlut frá áramótum.

  • Brú lífeyrissjóður kaupir 0,5% hlut í OLGERD og hafa nú keypt 2,4% hlut frá áramótum.

  • Birta lífeyrissjóður selur 0,23% hlut í REITIR og Stapi lífeyrissjóður selur 0,12% hlut. Félagið kaupir eigin bréf sem nemur 0,36% hlut.

  • Stefnir selur 0,7% hlut í SIMINN og Stapi lífeyrissjóður kaupir jafnstóran hlut. Síminn kaupir eigin bréf sem nemur 0,56% hlut og hefur keupt tæplega 5% hlut frá áramótum.

  • Brú lífeyrissjóður selur tæplega 1,3% hlut í SJOVA.

  • Lífeyrissjóður Verzlunarmanna selur 0,26% í SKAGI eftir að hafa keypt tæplega 1,3% hlut frá áramótum.

  • Brú lífeyrissjóður kaupir amk 0,15% hlut í SVN og Stapi lífeyrissjóður selur 0,19%.

AKKUR - Greining og ráðgjöf