VIÐBRÖGÐIN VORU SEND TIL ÁSKRIFENDA Í KJÖLFAR UPPGJÖRS OG ERU BIRT OPINBERLEGA NÚNA - NEÐANGREINT MIÐAST VIÐ ÞÆR UPPLÝSINGAR SEM LÁGU FYRIR KVÖLDIÐ 16. FEBRÚAR 2026.

STUTTA ÚTGÁFAN

Gott uppgjör þar sem rekstrarhagnaður er lítillega umfram væntingar en matsbreyting langt umfram væntingar

Jákvætt:

  1. Rekstrarhagnaður lítillega umfram væntingar

  2. Matsbreyting langt umfram væntingar

  3. Áætlun ársins lítillega umfram væntingar

Neikvætt:

  1. Óbreytt framlegð á komandi ári

Reitir birtu uppgjör fyrir fjórða ársfjórðung 2025 og árið í heild fyrr í dag. EBITDA tímabilsins er lítillega umfram væntingar AKKUR á meðan hagnaður er langt umfram væntingar vegna langtum hærri matsbreytinga og mun lægri fjármagnskostnaðar en spá gerði ráð fyrir.

Hér að neðan má sjá samantekt á uppgjöri félagsins borið saman við spá AKKUR og fyrra ár.

Eins og sést á þessari samantekt eru tekjur örlítið yfir væntingum og kostnaður lítillega undir væntingum, og þ.a.l. EBITDA lítillega yfir væntingum. Matsbreyting er langt yfir væntingum og fjármagnsgjöld töluvert undir væntingum.

Eins og sést á samanburði við fyrra ár er reksturinn að batna töluvert á milli ára. Tekjur aukast um 11,4% og EBITDA um 14,3%. Líkt og kom fram í frumskýrslu AKKUR um Reiti er gert ráð fyrir að þessi þróun haldi áfram eftir því sem nýjar eignir og þróunarverkefni verða tekjuberandi.

Jákvæðir punktar

  1. Rekstrarhagnaður er lítillega umfram væntingar. Tekjur eru örlítið umfram væntingar og kostnaður lítillega undir væntingum.

  2. Matsbreyting var langt umfram væntingar þrátt fyrir hækkandi raunvexti. Stærsti áhrifaþátturinn, samkvæmt kynningu félagsins, er hækkandi verðlag sem skýrir um 2/3 af matsbreytingu. Ávöxtunarkrafa félagsins í mati eigna var hækkaði frá fyrra ári um 0,1% í 6,7% (raunvextir). Allir eignaflokkar eru með jákvæða matsbreytingu.

  3. Áætlun ársins 2026 er lítillega umfram væntingar AKKUR en í frumskýrslu var gert ráð fyrir að EBITDA ársins 2026 yrði 12,9ma. Áætlun ársins hljóðar upp á 13,0-13,3ma, þegar tekið er tillit til verðlagsbreytinga er áætlunin lítillega umfram eldri spá AKKUR.

Neikvæðir punktar

  1. Gert er ráð fyrir að framlegðarhlutfall félagsins sé nokkurn veginn óbreytt milli ára. Þar sem félagið er ennþá með töluvert af þróunareignum sem ekki eru orðnar tekjuberandi má gera ráð fyrir að hlutfallið muni hækka eftir því sem tekjur aukast, engar stórar breytingar þó.

Niðurstaða

Gott uppgjör þar sem EBITDA er í samræmi við væntingar auk þess sem matsbreyting var langt yfir væntingum.

Verðlagning

Miðað við dagslokagengi í dag er heildarvirði félagsins 234ma að teknu tilliti til eigin bréfa sem þýðir að það er metið á 17,9x EBITDA ársins (leiðrétt fyrir bókfærðu virði þróunareigna) eða 16,5x EBITDA ársins 2026 miðað við áætlun félagsins.

Heildarvirði á fermetra er tæplega 483þkr og P/B (leiðrétt fyrir tekjuskattsskuldbindingu) er 0,84x.

Myndin hér að neðan sýnir sögulega þróun á leiðréttum EV/EBITDA hlutfalli hlaupandi tólf mánuði frá skráningu.

AKKUR - Greining og ráðgjöf